Agile þróun, þjálfun og fræðsla
Við hjálpum fólki í upplýsingatækni að ná meiri árangri.
Bergþór hjá Sjóvá og Guðjón hjá Spretti Marimo

Ráðgjafi hjá Sjóvá

Sjóvá og Sprettur Marimo hafa gert með sér samning um þátttöku ráðgjafa frá Spretti Marimo í þróun innri hugbúnaðarlausna Sjóvá. Starf ráðgjafans felst meðal annars í úttekt og greiningu á kerfum, að vera ScrumMaster fyrir tækniteymi og forritun í sama teymi. Á myndinni má sjá Bergþór Hauksson forstöðumann Upplýsingatækni hjá Sjóvá og Dr. Guðjón Guðjónsson eiganda hjá Spretti Marimo handsala samninginn.




Hafliði hjá Símanum og Petar hjá Spretti Marimo

Síminn og Sprettur Marimo áfram í samstarfi

Síminn og Sprettur Marimo hafa gert með sér samkomulag um að ráðgjafar frá Spretti Marimo haldi áfram að taka þátt þróun á lausnum fyrir innri notendur Símans. Á myndinni má sjá Hafliða Sigtrygg Magnússon, forstöðumann Hugbúnaðarþróunar og reksturs hjá Símanum, og Petar Shomov, eiganda hjá Spretti Marimo, handsala samninginn.




Sprettur og Marimo sameinast

Sprettur og Marimo sameinast

Fyrirtækin Sprettur og Marimo hafa ákveðið að sameina krafta sína undir nafninu Sprettur Marimo. Þessi sameining hefur verið að gerjast síðastliðin tvö ár eftir að fyrirtækin urðu nágrannar í lista- og tæknisetrinu Smugan að Klapparstíg 28. Í þessu nýja fyrirtæki munu starfa saman 8 manns, 4 úr gamla Spretti og 4 úr gamla Marimo. Þetta var opinberlega tilkynnt á AGILIS 2009 ráðstefnunni. Starfsemi fyrirtækisins verður betur kynnt á næstu dögum og vikum.




AGILIS 2009, CSM og CPO

Skráning hafin á CSM, CPO og AGILIS 2009

Skráning er hafin á næstu atburði Spretts. Í boði eru 3 atburðir sem allir fara fram á Hilton Reykjavik Nordica:

Mjög hagstæð verð eru fyrir þá sem vilja fara á fleiri en 1 atburð. Einnig bjóðum við upp á afslátt fyrir skólafólk og sprotafyrirtæki sem eru yngri en 2ja ára.

Kaupa miða á CSM, CPO eða AGILIS 2009


Við undirskrift hjá Íslandsbanka

Agile innleiðing hjá Íslandsbanka

Hugbúnaðardeild Íslandsbanka og Sprettur hafa gert með sér samkomulag um að Sprettur styðji við Scrum innleiðingu í teymum hugbúnaðardeildar. Teymin fara í gegnum Agile stökkpall en þjónustan hefur verið í þróun hjá Spretti síðastliðin 2 og 1/2 ár. Til að styðja við innleiðinguna starfar þjálfari Spretts náið með stjórnendum deildarinnar með heildarárangur í huga.

Þjálfarar Spretts eru búnir að hjálpa yfir 20 teymum af stað í Scrum hjá ýmsum fyrirtækjum með stökkpalli.

Við undirskrift hjá Íslandsbanka

Gagnavarslan og Sprettur í samstarfi

Samstarf er hafið milli Gagnavörslunnar og Spretts en það felur í sér að ráðgjafi frá Spretti tekur þátt í þróun á aðalvöru Gagnavörslunnar Core2. Gagnavarslan er spennandi nýsköpunarfyrirtæki sem býður upp á heildarlausnir í skjala- og upplýsingastjórnun. Hægt er að finna meira um Gagnavörsluna á vef þeirra.





Við undirskrift hjá Íslandsbanka

Síminn fær ráðgjafa frá Spretti

Síminn og Sprettur hafa skrifað undir samkomulag sem felur í sér að ráðgjafi frá Spretti tekur þátt í þróun á lausnum fyrir innri notendur Símans. Tæknisvið Símans og Sprettur hafa verið í farsælu samstarfi í yfir 2 ár og hefur Sprettur stutt við Símann í innleiðingu á Agile hugmyndum og Scrum. Agile aðferðir hafa rækilega fest sig í sessi í Símanum og í sumum deildum er kominn ScrumMaster í skipuritið!


Jeff og Alistair

AGILIS 2009, Certified ScrumMaster og Certified Product Owner námskeið

Mánaðarmótin nóv-des mun Sprettur standa fyrir þremur viðburðum á einni viku! Við erum mjög spenntir og stoltir yfir því að tveir af fremstu sérfræðingum í Agile heiminum hafa samþykkt að koma hingað til að halda námskeið og taka þátt í AGILIS 2009 ráðstefnunni. Þetta eru þeir Dr. Alistair Cockburn og Jeff Patton.

Dagskrá vikunnar er eftirfarandi:

  • Mán-þri, 30. nóv.-1. des. - Certified ScrumMaster námskeið kennt af Dr. Alistair Cockburn.
  • Mið, 2. des. - AGILIS 2009 með fyrirlestrum frá Dr. Alistair Cockburn, Jeff Patton, og fleirum sem kynntir verða síðar
  • Fim-fös, 3. des.-4.des. - Becoming a Passionate Product Owner námskeið kennt af Jeff Patton. Þetta námskeið gefur Certified Product Owner vottun.

Ráðstefnan er enn í mótun en fyrir áhugasama má fylgjast með þróun hennar á Facebook síðu Spretts

Paraforritun

Forritaraskjól

Sprettur stendur fyrir fyrsta forritaraskjólinu (e. Code Retreat) utan Bandaríkjanna, laugardaginn 9. maí næstkomandi. Markmið forritaraskjóls er að búa til aðstæður fyrir forritara til að þjálfa færni sína í prófanadrifinni hugbúnaðarþróun (e. Test-Driven Development). Einnig er þetta kjörið tækifæri til að deila hugmyndum og innsýn í þá blöndu af hug og handverki sem felst í hönnun og útfærslu á hugbúnaði, án þeirrar pressu sem menn eru almennt undir á vinnustað. Mæting er klukkan 10 og munum við vera eins lengi og við nennum :-) Ef þú vilt skrá þig, eða fá frekari upplýsingar, sendu okkur þá póst á gulli@spretturmarimo.is.

Horfa á J.B. Rainsberger...

TDD námskeið slógu í gegn!

Yfir 70 manns sáu J.B. Rainsberger en hann sló rækilega í gegn á TDD námskeiðum sem Sprettur hélt dagana 30. mars - 2. apríl. Haldið var 3ja daga námskeið fyrir forritara og tveggja tíma námskeið fyrir stjórnendur. Meðaltalseinkunn á forritaranámskeiði var 4,75 af 5 mögulegum (45 af 53 svöruðu) og meðaltalseinkunn á stjórnendanámskeiði var 4,58 af 5 mögulegum (22 af 28 svöruðu).
Stjórnendanámskeiðið var tekið upp á myndband og hefur það verið gert aðgengilegt fyrir alla þá sem misstu af þessum frábæra fyrirlesara.

Sjá myndir frá námskeiðinu Horfa á myndbandið




Mánaðarlega
að minnsta kosti

Markmið okkar er að hámarka arðsemi og lágmarka áhættu í hugbúnaðarverkefnum viðskiptavina okkar. Þetta gerum við með því að þjálfa stjórnendur og aðra starfsmenn í því að skila a.m.k. einu sinni í mánuði. ...meira


Póstlisti Spretts Marimo

Skráðu þig á póstlistann og fáðu fréttir um námskeið og kynningar.


    Agile netið