Agile þróun, þjálfun og fræðsla

Lean Executive námskeið 25. ágúst

Frode L. Ødegård

Breyttu þínu fyrirtæki í lærdómsfyrirtæki.

Flest fyrirtæki hefja innleiðingu á Agile aðferðum í gegnum grasrótina. Öll fyrirtæki sem við hjá Spretti Marimo þekkjum hafa byrjað sína innleiðingu með "pilot" teymi í Scrum sem síðan hefur breiðst út um fyrirtækið. En þá spyrja margir, hvernig getum við "Scrummað" stjórana? Hvernig getum við fengið góðu áhrifin sem Agile hefur haft á teymin okkar víðar í fyrirtækinu?

Þann 25. ágúst ætlar Sprettur Marimo að standa fyrir námskeiði fyrir forstjóra, framkvæmdastjóra og aðra stjórnendur sem vilja halda áfram að ná árangri með Lean og Agile aðferðum og taka fyrirtækið á næsta stig.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Lean Software Institute og ætlar Frode L. Ødegård að kynna hugmyndina um lærdómsfyrirtækið og hvernig beita má Lean hugsun og aðferðum til meiri árangurs.

Tilhögun og verð

  • Staður: Á Grand hóteli í salnum Gullteigur B sem er á jarðhæð.
  • Tími: 25. ágúst frá 9:00 - 16:30 (húsið opnar 8:15 með morgunverði og skráningu).
  • Verð: 97 þús. á mann (10% afsláttur er veittur ef 3 eða fleiri koma frá sama fyrirtæki).
  • Skráning: Sendu okkur póst með nöfnum þátttakenda á lean2010@spretturmarimo.is.

Skoðaðu ítarlega lýsingu á Lean Executive námskeiði