Agile þróun, þjálfun og fræðsla

Agile stökkpallur

Stökkpallur er hannaður til þess að koma teymum af stað eins hratt og mögulegt er í Scrum. Þjálfarar Spretts Marimo hafa sett í gang yfir 20 teymi.

Agile stökkpallur
Stökkpallur kemur teymum hratt af stað, smelltu fyrir stærri mynd.

Þjálfari Spretts Marimo fylgir verkefnateymi fyrstu 5-8 vikurnar í innleiðingu á Scrum og leiðir eftirfarandi vinnu:

  • Upphafstilling teymis
  • Upphafstilling verkefnis
  • Product Owner námskeið
  • Product Owner áætlanagerð
  • Námskeið fyrir Scrum teymi
  • "Kick-off" dagur
  • Þátttaka í sprettum
  • Kynning á stöðuskýrslu

Gert er ráð fyrir að á móti þjálfara Spretts Marimo sé ScrumMaster sem verði ábyrgur fyrir áframhaldandi innleiðingu.

Nánar um Agile stökkpall (PDF)

Vertu í sambandi og fáðu frekari upplýsingar.



Taktu sprettinn með okkur

Með nafni félagsins Sprettur Marimo vísum við í stutt þróunartímabil sem vara ekki lengur en 2-4 vikur. Í hverjum spretti er farið í gegnum kröfugreiningu, hönnun, forritun, prófanir, skjölun og uppsetningu;  en í lok hvers spretts er skilað nothæfum hugbúnaði til viðskiptavina. Að "spretta" er hjartslátturinn í starfi okkar, þar sem við í samvinnu með viðskiptavinum okkar búum til verðmæti.