Agile þróun, þjálfun og fræðsla

Um Sprett Marimo

Sprettur Marimo ehf.
Klapparstíg 28
101 Reykjavík
Kennitala: 550507-1960
VSKnr: 94306



Við hjá Spretti Marimo erum samstilltur og einbeittur hópur af tölvunarfræðingum sem hafa reynslu í stjórnun og þróun hugbúnaðar en reynsla okkar spannar hugbúnaðarverkefni á eftirfarandi sviðum:

  • Bankastarfsemi
  • Fjarskiptaþjónusta
  • Ferðaþjónusta
  • Öryggismál hugbúnaðar
  • Heilbrigðisstarfsemi
  • Opinber þjónusta 

Við trúum því að þær grundvallarreglur og hugmyndir sem kristallast í Agile hugmyndafræðinni margfaldi árangur og skilvirkni í hugbúnaðarverkefnum og öðrum nývöruþróunarverkefnum. Við trúum því að innan fárra ára verði sjálfgefið að öll fyrirtæki og stofnanir, sem þróa hugbúnað, beiti Agile aðferðum, tólum og hugmyndum til að ná markmiðum sínum.

Við ætlum okkur að vera leiðandi í Agile hugbúnaðarþróun á Íslandi með þróun, þjálfun og fræðslu.

Nánar um þjónustu Spretts Marimo

Agile samfélagið

Við styðjum við Agile samfélagið með þátttöku í Agile hópnum.



Taktu sprettinn með okkur

Með nafni félagsins Sprettur Marimo vísum við í stutt þróunartímabil sem vara ekki lengur en 2-4 vikur. Í hverjum spretti er farið í gegnum kröfugreiningu, hönnun, forritun, prófanir, skjölun og uppsetningu;  en í lok hvers spretts er skilað nothæfum hugbúnaði til viðskiptavina. Að "spretta" er hjartslátturinn í starfi okkar, þar sem við í samvinnu með viðskiptavinum okkar búum til verðmæti.