Agile þróun, þjálfun og fræðsla

Fréttir

J.B. Rainsberger

TDD fyrir stjórnendur - 2ja tíma námskeið

Vegna áhuga frá stjórnendum hefur Sprettur ákveðið að halda aukanámskeiðið "TDD fyrir stjórnendur". Á námskeiðinu ætlar J.B. Rainsberger að fara yfir hvað prófanadrifin þróun (Test-Driven Development) er og hvers vegna aðferðin er einn af hornsteinum Agile tækniaðferðanna. Ef þú vilt vita hvernig TDD hjálpar þér að auka gæði verkefna og um leið lækka kostnað þeirra skaltu ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara. Námskeiðið verður haldið 2. apríl milli 9:00 og 11:00 á Grand Hótel. Húsið opnar kl 8:30 með morgunverði. Verðið er 19.500 kr. á mann.

Skráning á TDD fyrir stjórnendur

Námskeið í prófanadrifinni þróun (TDD): 1-3 dagar

Dagana 30. mars - 1. apríl stendur Sprettur fyrir sínu fyrsta Agile tækninámskeiði. Þá ætlar J.B. Rainsberger einn þekktasti tækniþjálfarinn í Agile heiminum að kenna námskeiðið "Test-Driven Development from the Beginning". Prófanadrifin þróun (TDD) er einn af hornsteinum Agile tækniaðferðanna og er á sama tíma sú aðferð sem einna erfiðast er að tileinka sér. Námskeiðið verður vendipunktur á ferli þínum sem forritari.

Til þess að koma til móts við sem flesta þá verður hægt að velja um eins, tveggja eða þriggja daga þátttöku en kafað verður dýpra og dýpra með hverjum deginum. Skráning hefst er hafin!.

Meira um TDD námskeið

Pétur og Daði

Opið námskeið: Að vinna í Scrum teymi

Dagana 4. - .5 mars stendur Sprettur fyrir námskeiðinu "Að vinna í Scrum teymi". Scrum er á yfirborðinu ótrúlega einföld aðferðaferðafræði en reynslan sýnir að flest fyrirtæki eiga í erfiðleikum með að útfæra Scrum í sínu samhengi. Markmiðið með námskeiðinu er að gefa teymum og stjórnendum öll tólin til að ná árangri með Scrum. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum og mikil áhersla verður lögð á "hands-on" þátttöku.

Námskeiðið verður leitt af þjálfurum Spretts þeim, Daða Ingólfssyni og Pétri Orra Sæmundsen, en þeir eru reynslumestu Scrum þjálfarar landsins og hafa sett í gang yfir 20 teymi.

Frekari upplýsingar um opið Scrum námskeið

Guðbjörn S. Hreinsson, deildarstjóri Stjórnkerfa

70 manns á morgunverðarfundi

Það voru um 70 manns sem létu sjá sig á morgunverðarfundi Spretts á Grandhótel þann 10. desember. Á fundinum lýstu Stjórnendur Símans því hvernig Agile aðferðir hafa hjálpað þeim að ná árangri og hvernig Scrum aðferðin hefur farið eins og eldur í sinu um fyrirtækið.

Sjá myndir frá fundinum

AGILIS 2008

Morgunverðarfundur: Agile innleiðing hjá Símanum

Þann 10. desember milli kl 9:00-10:15 ætlar Sprettur að standa fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel þar sem nokkrir stjórnendur hjá Símanum kynna hvernig þau hafa staðið að Agile innleiðingu og hvernig staðan er í dag. Í nóvember á síðasta ári byrjaði Síminn að prófa sig áfram með Agile aðferðir. Nú rúmlega ári síðar hefur Síminn innleitt Scrum í um 10 verkefnum þar sem tekist var á við margs konar viðfangsefni svo sem hugbúnaðarþróun, innleiðingu kerfa og uppsetningu flókinna tæknieininga. Dagskráin verður eftirfarandi:

  • 8:30 - 9:00 Morgunverður, húsið opnar með morgunverði
  • 9:00 - 9:20 Agile innleiðing hjá Símanum, Erlendur Steinn Guðnason forstöðumaður fastlínukerfa
  • 9:20 - 9:30 Agile Center, Birna Ósk Einarsdóttir forstöðumaður verkefnastofu og Sébastien Nollet verkefnastjóri
  • 9:30 - 9:35 Scrum í innleiðingarverkefni, Guðbjörn Hreinsson deildarstjóri Stjórn- og eftirlitskerfa
  • 9:35 - 9:40 Scrum í hugbúnaðarverkefni, Björn Valdimar Guðmundsson verkefnastjóri
  • 9:40 - 10:15 Pallborðsumræður, ofangreindir aðilar sitja fyrir svörum.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir og í boði verður úrvals morgunverður.

Nauðsynlegt er að skrá sig með því að senda póst á AgileHjaSimanum@spretturmarimo.is

90 þátttakendur á AGILIS 2008 og SSA

Sjötíu manns létu fjármálakreppuna ekki stöðva sig og mættu á AGILIS ráðstefnu Spretts og CCP í síðustu viku. Ráðstefnan skiptist í tvennt. Annars vegar voru erlendu gestirnir með framsögu, en Jeff Sutherland og Dean Leffingwell eru með bestu fyrirlesurum í Agile samfélaginu. Hins vegar voru íslensku fyrirtækin CCP, Síminn og Mentis með reynslusögur, en sérstaklega var ánægjulegt að sjá hversu góður árangur hafði náðst og hversu ákveðin þau eru í að halda áfram á Agile braut.

Á Scaling Software Agility (SSA) námskeiðinu fór Dean Leffingwell yfir það hvernig hægt er að skipuleggja verkefni og fyrirtæki með fleiri en einu Agile teymi. Tuttugu manns frá 6 fyrirtækjum mættu á námskeiðið.

Glærur frá AGILIS 2008

Agile október

Dagana 14-15 október verður Agile stemning á Hilton Nordica. Fyrri daginn verður AGILIS 2008 ráðstefnan en hún er haldin í samstarfi við CCP. Þemað á AGILIS þetta árið verður "Þróun Agile fyrirtækja". Í boði verður úrvals dagskrá en Jeff Sutherland höfundur Scrum og Dean Leffingwell halda fyrirlestra og sagðar verða Agile reynslusögur úr íslensku viðskiptalífi. Seinni daginn verður Dean Leffingwell með námskeiðið Scaling Software Agility en það er byggt á samnefndri bók.

Meira um Agile október

Rammasamningur við Símann
Frá undirskrift samningsins: Sébastien (Síminn),
Erlendur (Síminn), Pétur (Sprettur) og Daði (Sprettur).

Rammasamningur við Símann

Sprettur og Síminn hafa skrifað undir rammasamning.