Agile þróun, þjálfun og fræðsla

Starfsmenn

Ari Jóhannesson, tæknistjóri

Daði Ingólfsson, stofnandi

Dísa Anderiman, stofnandi

Dr. Guðjón Guðjónsson, stofnandi

Guðlaugur Stefán Egilsson, stofnandi

Ian McAdam, stofnandi

Petar Shomov, stofnandi

Pétur Orri Sæmundsen, framkvæmdastjóri

Ari Jóhannesson

Ari Jóhannesson

Ari er með 19 ára reynslu sem verkefnastjóri í hugbúnaðargerð, ráðgjafi og hugbúnaðarsérfræðingur. Ari var verkefnasjóri hjá OZ.COM þar sem hann stýrði hönnun og framleiðslu á hugbúnaðarþróunarpakka fyrir Ericsson AB. Hann hefur einnig unnið fyrir Sameinuðu þjóðinar þar sem hann hannaði og framleiddi kjósendaskráningarkerfi fyrir Vestur Sahara. Síðustu fimm árin áður en Ari tók þátt í að stofna Marimo var hann framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Calidris þar sem hann stýrði 25 manna hugbúnaðarhóp sem þróaði lausnir fyrir flugfélög, s.s. Emirates, Finnair og Brithish Airways. Ari er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.

Dísa Anderiman

Dísa Anderiman

Dísa er með mikla og víðtæka reynslu sem verkefnastjóri, hugbúnaðargreinir, viðmótshönnuður og vöruþróunarstjóri. Hún hefur unnið fyrir OZ.COM, Landmælingar Íslands og Air Atlanta. Hún var hugbúnaðarfræðikennari hjá Háskólanum í Reykjavík frá 1994-2000 þar sem hún kenndi "Kerfisgreiningu", "UML", "Gagnagrunnsfræði", "Hönnun notendaviðmóta" og "Verkefnastjórnun". Dísa hefur óvenju breiðan grunn sem verkefnastjóri og hefur stýrt margvíslegum lista-, menningar- og kvikmyndaverkefnum, t.d. var hún framleiðandi íslensku kvikmyndarinnar Veðramót. Dísa er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Århus Köbmannskole.

Daði Ingólfsson

Daði Ingólfsson

Daði hefur víðtæka reynslu á öllum sviðum hugbúnaðarþróunar en hann hefur starfað í níu ár bæði sem forritari og leiðtogi teyma. Hann kynntist strax í upphafi ferilsins þeim þungu og óskilvirku aðferðum sem fossalíkanið leiðir af sér en uppgötvaði Agile samfélagið í upphafi árs 2002 og hefur síðan þá einbeitt sér að Agile forritunar- og stjórnunaraðferðum. Daði starfaði sem hugbúnaðarsérfræðingur á hugbúnaðarsviði EJS (síðar HugurAx) í rúmlega 5 ár áður en hann flutti sig til Betware þar sem hann starfaði sem forritari og Agile leiðtogi. Daði hóf störf hjá Spretti í nóvember 2007 sem Agile/Scrum þjálfari. Daði er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði.

Daði hefur sjálfur beitt og hjálpað öðrum að beita Agile aðferðum síðan 2002, með sérstakri áherslu á ítrana- og prófanadrifna þróun. Hjá Betware leiddi Daði Agile innleiðingu í +20 manna dreifðu verkefni (þrír staðir í tveimur löndum) með Agile þjálfun á öllum sviðum verkefnisins þ.e. í kröfugreiningu, forritunaraðferðum og stjórnun.

Guðjón Guðjónsson

Dr. Guðjón Guðjónsson

Guðjón er með víðtæka reynslu í hugbúnaðargerð. Áður en hann koma til Marimo var hann verkefnastjóri hjá Calidris, og stýrði verkefnum fyrir mörg af stærstu flugfélögum heimsins. Þar áður van hann hjá OZ.COM, fyrirtæki sem sérhæfði sig í samskiptalausnum og 3D gerviheimum. Guðjón er með Ph.D. í tölvunarfræði frá Pennsylvania State University USA.

Guðlaugur Stefán Egilsson

Guðlaugur Stefán Egilsson

Guðlaugur Stefán Egilsson er margreyndur hugbúnaðarsérfræðingur sem hefur verið viðloðandi hugbúnaðarþróun frá 1994. Hann telst til brautryðjenda í Agile hugsun á Íslandi, og leiddi m.a. eitt af fyrstu eXtreme Programming teymum landsins hjá Íslenskri Erfðagreiningu frá 2000-2003. Hann hefur starfað sem ráðgjafi hjá TM Software, verkefnastjóri hjá Íslenskri Erfðagreiningu, og alhliða hugbúnaðarsérfræðingur hjá Calidris ehf, þar sem hann sá meðal annars um samstæðustjórnun ásamt því að leiða þróunarstarf sem arkitekt. Einnig hefur hann kennt Agile aðferðir bæði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.

Guðlaugur hefur víðtæka þekkingu á öllum hliðum hugbúnaðarþróunar, frá prófanadrifinni þróun yfir í samstæðustjórnun og frá hönnun og arkitektúr yfir í verkefnastjórnun. Guðlaugur er með MSc gráðu í tölvunarfræði.

Ian McAdam

Ian McAdam

Ian hefur 18 ára reynslu í hugbúnaðargerð sem verkefnastjóri, ráðgjafi, forritari og samskiptastjóri. Hann hefur stýrt samskiptum og samhæfingu í stórum alþjóðlegum verkefnum fyrir Finnair, Icelandair, British Airways, Emirates og stýrt framsendingu hugbúnaðargerðar til Indlands. Ian var CTO hjá Gangverki ehf, verðlaunuðu fjarskiptafyrirtæki. Þar áður vann hann hjá OZ.com að gerð 3D-lausna fyrir fyrirtæki eins og Intel og Ericsson. Greinar eftir Ian hafa verið birtar í þekktum vísindaritum. Ian er með MSc gráðu í tölvunarfræði og B.Sc. gráðu í eðlisfræði frá McGill háskólanum í Montreal, Kanada.

Petar Shomov

Petar Shomov

Petar hefur yfir 10 ára reynslu í hugbúnaðarþróun. Hann hefur tekið þátt í ólíkum verkefnum og m.a. unnið í þróun á innfelldum kerfum (embedded systems) fyrir hitastýringar hjá Eurosys (í Búlgaríu), vírusvarnarlausnum hjá Friðriki Skúlasyni og í samþættingum og IPTV lausnum hjá Industria. Hann hefur reynslu í allskyns tækniumhverfi m.a. í Delphi, C++, .NET og Java. Petar er með B.S. gráðu í tölvunarfræði.

Petar er ákafur fylgismaður Agile hugmynda en hann hefur lagt sérstaka áherslu á Agile forritunaraðferðir og aðrar hugmyndir sem auka samvinnu og framleiðni teyma, en hann leiddi 6 manna teymi sem ScrumMaster hjá Industria. Meðal þeirra aðferða sem Petar hefur ástundað til þess að straumlínulaga þróunarferlið eru sjálfvirkar prófanir, Continuous integration, Test Driven Development og Domain Driven Design. Petar er virkur þátttakandi í íslenska Agile samfélaginu.

Pétur Orri Sæmundsen

Pétur Orri Sæmundsen

Pétur er frumkvöðull með reynslu bæði sem hugbúnaðarsérfræðingur og stjórnandi. Hann hóf ferilinn sem vefforritari hjá Íslensku Vefstofunni (nú TM Software Origo) og fór þaðan yfir til Íslandsbanka og vann sem hugbúnaðarsérfræðingur; hann var þróunarstjóri hjá Microsoft deild Applicon þar sem hann leiddi verkefni bæði sem arkitekt og verkefnastjóri. Pétur var deildarstjóri hjá þróunardeild Industria á Íslandi og leiddi Agile umbreytingu fyrirtækisins. Meðfram störfum sínum í ofangreindum fyrirtækjum hefur hann kennt forritun og Agile aðferðir í Verzlunarskóla Íslands, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Pétur er með B.S. gráðu í tölvunarfræði.

Pétur beitti eXtreme Programming forritunaraðferðum í litlu verkefni hjá Íslandsbanka árið 2003 en hefur síðan þá verið eindreginn fylgismaður Agile hugmynda og aðferða. Hjá Applicon skipulagði hann 4-10 manna Scrum verkefni og hjá Industria var hann Agile og Scrum ráðgjafi í +20 manna þróunarverkefni. Pétur var stjórnunarráðgjafi í innleiðingu á Scrum í +40 manna verkefni hjá Kaupþingi. Hann er formaður Agile hópsins sem er óháður félagsskapur sem hefur það markmið að útbreiða Agile hugmyndir og aðferðir.

Certified ScrumMaster og Product Owner

Starfsmenn Spretts eru með bæði Certified ScrumMaster og Certified Product Owner vottun.



Taktu sprettinn með okkur

Með nafni félagsins Sprettur Marimo vísum við í stutt þróunartímabil sem vara ekki lengur en 2-4 vikur. Í hverjum spretti er farið í gegnum kröfugreiningu, hönnun, forritun, prófanir, skjölun og uppsetningu;  en í lok hvers spretts er skilað nothæfum hugbúnaði til viðskiptavina. Að "spretta" er hjartslátturinn í starfi okkar, þar sem við í samvinnu með viðskiptavinum okkar búum til verðmæti.