Agile þróun, þjálfun og fræðsla

Viðskiptavinir


 
Síminn



Sjóvá Gogoyoko
Neat



Gagnaveitan Reykavíkurborg Menntasvið
Íslandsbanki Kaupþing  
Tryggingamiðstöðin CCP Össur
Íbúðarlánasjóður Men and Mice
Landsbankinn Nova  


"Reynsla okkar hjá Símanum sýnir að það skiptir sköpum að njóta leiðsagnar þegar fyrstu skrefin eru tekin í Agile innleiðingu til að tryggja að strax frá upphafi sé rétt stefna tekin. Ég tel því ólíklegt að við hefðum náð þessum árangri án hjálpar frá Spretti en Agile innleiðing hefur kallað á algera hugarfarsbreytingu og síðast en ekki síst mikla ánægju starfsfólks með betra vinnufyrirkomulag"

Erlendur Steinn Guðnason, Forstöðumaður Virðisaukandi kerfa, Síminn



"Í samvinnu við þjálfara Spretts tókst okkur að auka skýrleika í verkefninu og gera teymisvinnuna markvissari. Að vinna í mánaðarlöngum sprettum með þverfaglegum teymum þar sem afraksturinn var sýndur í lok hverrar lotu, var bæði hvetjandi fyrir teymin og gaf stjórnendum betri skilning á stöðunni."

Ása Kristbjörg Karlsdóttir, Program Manager, Kaupþing


"Samvinnan við Sprett gerði okkur kleift að stilla saman starfsmenn og verktaka með skilvirkum hætti, og gerði gæfumuninn á síðustu metrunum til þess að koma Nova í loftið. Notendasögur og Scrum aðferðin gáfu öllum aðilum skýra mynd af stöðunni, og markmið til að stefna að."

Gunnar Ólafsson, Yfirmaður Upplýsingatækni, Nova



Taktu sprettinn með okkur

Með nafni félagsins Sprettur Marimo vísum við í stutt þróunartímabil sem vara ekki lengur en 2-4 vikur. Í hverjum spretti er farið í gegnum kröfugreiningu, hönnun, forritun, prófanir, skjölun og uppsetningu;  en í lok hvers spretts er skilað nothæfum hugbúnaði til viðskiptavina. Að "spretta" er hjartslátturinn í starfi okkar, þar sem við í samvinnu með viðskiptavinum okkar búum til verðmæti.